Project Description

Brúnkumeðferð

Brúnkumeðferð

Jafn og fallegur litur án sólar

BRÚNKUMEÐFERÐ

Fyrir meðferð:

Við mælum með að skrúbba húðina og næra húðina 24 tímum áður en þú mætir í brúnkumeðferð, leggðu sérstaka áherslu á olnboga,hné, ökkla og vandamálasvæði.

Vaxaðu að minnsta kosti 48 tímum fyrir meðferð. Þetta gefur svitaholunum tíma til að lokast. Doppur í svitaholum geta birst ef þessu er ekki  fylgt á eftir.

Ekki nota rakakrem ,ilmvatn, svitalyktareyðir eða farða áður en þú kemur í brúnkumeðferð.

Eftir meðferð:

Vertu í víðum og þægilegum fötum þröng föt eða nærföt geta skilið eftir sig far.

Við mælum með að leyfa brúnkunni að byggjast upp og dökkna í 4-6 klukkutíma.  Þá er farið í létta sturtu undir volgu vatni. Mælst er með að nota ekki sturtugel,skrúbb,sjampó fyrstu 24klst eftir meðferðina.

Því lengur sem er brúnkan er látin liggja á, því dekkri verður brúnkan (ekki lengur en 8 klukkustundir.)

Dampið léttilega með handklæðinu þegar þú ert búin í sturtu. Gott er að nota rakakrem næstu daga, það tryggir að brúnkan endist lengur og haldist jöfn á.

Forðastu að svitna eða synda fyrsta sólarhringinn eftir brúnku.

Reyndu að snerta húðina sem minnst meðan brúnkan er að byggjast upp.

Skoðaðu fleiri meðferðir sem við bjóðum upp á